Kristni
til baka

Títusarbréfið 2

1Þú átt að kenna fólki að lifa heilbrigðu trúarlífi í samræmi við Guðs orð.

2Aldraðir menn eiga að vera bindindissamir, heiðarlegir og hógværir. Þeim ber að þekkja sannleikann og trúa honum, sýna kærleika og þolinmæði.

3Segðu öldruðum konum að vera hæglátar og grandvarar í öllu, eins og trúuðum sæmir. Þær eiga hvorki að vera rógberar né drykkfelldar, heldur til fyrirmyndar í hinu góða.

4Þær kenni ungum konum að vera hæglátar, elska eiginmenn sína og börn,

5sýna grandvarleik og hafa hreint hugarfar, hugsa um heimili sitt og sýna eiginmönnum sínum góðvild og hlýðni, svo að fólk lasti ekki trúna þeirra vegna.

6Á sama hátt skaltu hvetja unga menn til að hegða sér vel og vera ábyrgir.

7Þú verður auðvitað sjálfur að vera þeim fyrirmynd í öllu sem gott er. Allt sem þú gerir á að bera þess vott að þú elskir sannleikann og viljir veg hans sem mestan.

8Vertu skynsamur og rökfastur og láttu engan veikan hlekk finnast í því sem þú segir, svo að þeir sem gagnrýna þig verði sér til skammar.

9Minntu þræla á að hlýða húsbændum sínum og koma vel fram við þá. Þeir mega hvorki tala illa um yfirmenn sína

10né vera þjófóttir, heldur skulu þeir vera áreiðanlegir í öllu og verða þannig öðrum hvatning til að trúa Guði, frelsara okkar.

11Því að fyrirgefning Guðs og hjálpræði hans stendur öllum til boða, og það ókeypis.

12Þetta sýnir að Guð vill að við snúum okkur frá guðleysi og syndsamlegum nautnum, til góðs og guðrækilegs lífernis,

13bíðandi þeirrar stundar er dýrð hans birtist – dýrð hins mikla Guðs og frelsara okkar Jesú Krists,

14sem tók á sig dóm Guðs yfir syndum okkar og dó í okkar stað. Þetta gerði hann til að leysa okkur frá syndinni og taka okkur að sér sem sína eigin þjóð – til að hreinsa hjörtu okkar og vekja hjá okkur löngun til að gera öðrum gott.

15Þetta skaltu kenna hinum kristnu. Hvettu þá og leiðbeindu eftir þörfum og með röggsemi, því að þú hefur rétt til þess. Gættu þess að láta engan lítilsvirða þig.

heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

WEBREATH · 11:11

«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25

Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.

WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath