Kristni
til baka

Opinberun Jóhannesar 5

1Sá sem í hásætinu sat, hélt á uppvafinni bók í hægri hendi og var hún skrifuð bæði að utan og innan, auk þess var hún lokuð með sjö innsiglum.

2Sterklegur engill hrópaði nú hárri röddu og sagði: „Hver er þess verður að brjóta innsigli bókarinnar og opna hana?“

3En enginn slíkur fannst, hvorki á himni né jörðu né heldur meðal hinna dauðu, sem leyft var að opna hana og lesa.

4Þá grét ég af vonbrigðum, vegna þess að hvergi nokkurs staðar fannst neinn, sem var verður þess að opna hana og segja okkur hvað í henni stæði.

5Þá sagði einn af öldungunum tuttugu og fjórum við mig: „Hættu að gráta og taktu eftir! Ljónið af Júda ætt, afkomandi Davíðs, hefur sigrað og sannað að hann er verðugur þess að brjóta þessi sjö innsigli og opna bókina.“

6Þá leit ég upp og sá lamb sem stóð frammi fyrir öldungunum tuttugu og fjórum, frammi fyrir hásætinu og verunum fjórum og ég sá að á lambinu voru sár, sem eitt sinn höfðu leitt það til dauða. Það hafði sjö horn og sjö augu, táknuðu þau hinn sjöfalda anda Guðs, sem sendur er út um allan heiminn.

7Lambið gekk nú fram og tók við bókinni úr hægri hendi þess sem sat í hásætinu,

8og þá krupu öldungarnir tuttugu og fjórir frammi fyrir því. Hver öldungur um sig hafði hörpu og gullskál fulla af reykelsi – en það eru bænir þeirra sem trúa á Guð.

9Og þeir sungu nýjan söng með þessum orðum: „Þú ert verðugt að taka við bókinni, brjóta innsigli hennar og opna hana, því að þér var slátrað og með blóði þínu keyptir þú fólk af öllum þjóðum, Guði til eignar.

10Allt þetta fólk hefur þú leitt inn í ríki Guðs og gert það að prestum hans og þeir munu ráða ríkjum á jörðinni.“

11Þá heyrði ég í milljónum engla, sem voru umhverfis hásætið, verurnar fjórar og öldungana,

12og þeir sungu af miklum þrótti: „Lambið er verðugt! Lambið, sem slátrað var, er verðugt að fá máttinn, ríkdóminn, viskuna, kraftinn, heiðurinn, dýrðina og lofgjörðina.“

13Þá heyrði ég alla, sem eru á himni og jörðu og einnig hina dauðu sem eru í jörðinni og hafinu, hrópa og segja: „Blessunin, heiðurinn, dýrðin og mátturinn tilheyra honum, sem í hásætinu situr, og lambinu um alla eilífð.“

14Verurnar fjórar sögðu: „Amen!“ Og öldungarnir tuttugu og fjórir féllu fram og tilbáðu.

heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

WEBREATH · 11:11

«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25

Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.

WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath