Kristni
til baka

Opinberun Jóhannesar 4

1Síðan leit ég upp og sá opnar dyr á himninum. Rödd sem ég hafði heyrt áður, sú sem líktist voldugum lúðurhljómi, talaði til mín og sagði: „Komdu hingað upp og ég mun sýna þér hvað framtíðin ber í skauti sér!“

2Á sömu stundu var ég staddur í andanum á himnum – hvílík dýrð! Ég sá hásæti og einhvern, sem sat í hásætinu.

3Mikilli geisladýrð stafaði frá honum, eins og frá glitrandi demanti eða skínandi rúbín, og regnbogi, sem glóði eins og smaragður, var yfir hásæti hans.

4Umhverfis hásætið voru önnur tuttugu og fjögur minni hásæti og í þeim sátu tuttugu og fjórir öldungar, sem allir voru hvítklæddir og með gullkórónur á höfði.

5Þrumur og eldingar gengu stöðugt út frá hásætinu og í þrumunum heyrðust raddir. Beint fyrir framan hásætið voru sjö logandi lampar og táknuðu þeir hinn sjöfalda anda Guðs.

6Þar fyrir framan var glerhaf, kristaltært. Hásætið hafði fjórar hliðar og við hverja hlið stóð lifandi vera, alsett augum.

7Fyrsta veran var eins og ljón, önnur líktist nauti, sú þriðja hafði mannsandlit og fjórða var eins og örn.

8Hver vera um sig hafði sex vængi og var miðhluti vængjanna þakinn augum. Verurnar endurtóku þessi orð hvíldarlaust, dag og nótt: „Heilagur, heilagur, heilagur er Drottinn Guð hinn alvaldi – sá sem var og er og kemur.“

9Verurnar gjalda honum, sem í hásætinu situr, dýrð, heiður og þökk, honum, sem lifir um aldir alda,

10og þá falla öldungarnir tuttugu og fjórir fram fyrir auglit hans og tilbiðja hann. Þeir varpa kórónum sínum fram fyrir hásætið og syngja:

11„Drottinn, þú ert verður þess að hljóta dýrð, heiður og mátt, því samkvæmt vilja þínum hefur þú skapað allt sem er.“

heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

WEBREATH · 11:11

«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25

Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.

WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath