Kristni
til baka

Sálmarnir 98

1Syngið nýjan söng fyrir Drottin því að hann hefur unnið dásamlegt verk! Hann er sigursæll í mætti sínum og heilagleika.

2Hann hefur tilkynnt sigur sinn – birt þjóðunum réttlæti sitt.

3Hann hefur miskunnað lýð sínum, haldið loforð sín til Ísrael. Allur heimurinn sá er Guð bjargaði þjóð sinni.

4Þess vegna hefja löndin fagnaðarsöng, syngja og lofa hann af öllu hjarta.

5Syngið Drottni við undirleik hörpu.

6Blásið í lúðra og básúnur gjalli! Hljómsveitin spili lofgjörðarlag. Hyllið Drottin, konunginn!

7Hafið drynji og lofi Drottin! Jörðin og íbúar hennar reki upp fagnaðaróp!

8Fossarnir klappi lof í lófa og klettarnir syngi gleðisöng, því að Drottinn mun dæma heiminn í réttlæti sínu og af réttvísi.

heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

WEBREATH · 11:11

«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25

Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.

WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath