Sálmarnir 97
1Drottinn er konungur! Allur heimurinn gleðjist! Fagnið þið eyjar við ysta haf!
2Tignarleg ský umlykja hann. Réttlæti og réttvísi eru undirstöður hásætis hans.
3Eldur gengur út frá honum og eyðir öllum óvinum hans.
4Elding hans leiftrar og lýsir upp jörðina. Heimurinn skelfur af ótta.
5Fjöllin bráðna eins og vax fyrir Drottni.
6Himnarnir kunngera réttlæti hans og allar þjóðir sjá dýrð hans.
7Allir skurðgoðadýrkendur verða til skammar – þeir sem stæra sig af falsguðum – því að allir slíkir guðir verða að beygja sig fyrir Drottni.
8Jerúsalem og borgirnar í Júda hafa heyrt af réttvísi þinni, Drottinn, og fagna, því að þú ríkir með reisn yfir allri jörðinni og ert hátt yfir alla aðra guði hafinn.
10Drottinn elskar þá sem hata hið illa. Hann verndar líf fylgjenda sinna og frelsar þá undan óguðlegum.
11Ljós skal lýsa hinum réttlátu og gleði hlotnast hinum góðu.
12Allir réttlátir fagni fyrir Drottni og vegsami hans heilaga nafn.
heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
WEBREATH · 11:11
«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25
Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.
WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath