Kristni
til baka

Sálmarnir 96

1Syngið Drottni nýjan söng! Syngið þann söng um alla jörðina!

2Syngið um velgjörðir hans, lofið nafn hans. Kunngerið hjálpráð hans dag eftir dag.

3Segið frá dýrð hans meðal þjóðanna, – allra þjóða. Kunngerið öllum dásemdarverk hans.

4Því að Drottinn er mikill og mjög vegsamlegur. Hann einn er sá Guð sem rétt er að tilbiðja.

5Þjóðirnar tilbiðja falsguði eina, en okkar Guð hefur skapað himininn!

6Hann er umvafinn heiðri og dýrð, styrkur og fegurð fylla musteri hans.

7Þið kynkvíslir jarðar, játið Drottni heiður og dýrð.

8Heiðrið hann eins og skyldugt er! Berið fram fórnina og tilbiðjið hann.

9Tilbiðjið Drottin í heilagleik og heiðri. Allur heimurinn skjálfi fyrir augliti hans.

10Kunngjörið þjóðunum að Drottinn er konungur. Hann ríkir yfir alheimi. Hann er skapari jarðar og mun dæma allar þjóðir með réttvísi.

11Himnarnir gleðjist og jörðin kætist og brimgnýr hafsins boði tign hans og mátt.

12Ávöxtur jarðar vitnar um dýrð hans og þytur trjánna lofar hann.

13Því að Drottinn mun dæma heiminn með réttvísi og þjóðirnar eftir trúfesti sinni!

heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

WEBREATH · 11:11

«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25

Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.

WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath