Sálmarnir 8
1Ó, Drottinn Guð, mikið er nafn þitt! Jörðin er full af dýrð þinni og himnarnir endurspegla mikilleik þinn.
3Þú hefur kennt börnum að lofsyngja þér. Fyrirmynd þeirra og vitnisburður þaggi niður í óvinum þínum og valdi þeim skömm.
4Þegar ég horfi á himininn og skoða verk handa þinna, tunglið og stjörnurnar sem þú hefur skapað –
5þá undrast ég að þú skulir minnast mannsins, láta þér umhugað um mannanna börn.
6Og líka, að þú lést manninn verða litlu minni en Guð! Krýndir hann sæmd og heiðri!
7Þú hefur sett hann yfir allt sem þú hefur skapað, allt er honum undirgefið:
8Uxar og allur annar fénaður, villidýrin
9fuglar og fiskar, já, allt sem í sjónum syndir.
10Ó, Drottinn Guð, hversu dýrlegt er nafn þitt um alla jörðina!
heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
WEBREATH · 11:11
«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25
Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.
WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath