Sálmarnir 87
1Hátt á hinu heilaga fjalli, stendur Jerúsalem, borg Guðs – borgin sem hann elskar öllum borgum framar.
3Vel er um þig talað, þú borg Guðs!
4Ef ég í vinahópi minnist á Egyptaland eða Babýlon, Filisteu eða Týrus eða hið fjarlæga Bláland, þá hrósa þeir sér sem fæddir eru á þessum stöðum.
5En mestur heiður fylgir Jerúsalem! Hún er móðirin og gott er að vera fæddur þar! Hann, hinn hæsti Guð, mun sjálfur vernda hana.
6Þegar Drottinn lítur yfir þjóðskrárnar, mun hann merkja við þá sem hér eru fæddir!
7Á hátíðum og tyllidögum munu menn syngja: „Jerúsalem, uppsprettur lífs míns eru í þér!“
heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
WEBREATH · 11:11
«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25
Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.
WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath