Kristni
til baka

Sálmarnir 85

1Drottinn, þú hefur baðað land þetta blessun! Þú hefur snúið hlutunum Ísrael í hag

3og fyrirgefið syndir þjóðar þinnar, já, hulið þær allar!

4Reiði þína hefur þú líka dregið í hlé.

5Dragðu okkur nær þér svo að við getum elskað þig heitar, að þú þurfir ekki að reiðast okkur á ný.

6(Eða mun reiði þín vara að eilífu, frá kynslóð til kynslóðar?)

7Lífgaðu okkur við, þjóð þína, svo að við getum aftur lofað þig.

8Leyfðu okkur að njóta elsku þinnar og gæsku, ó Guð, og veittu okkur hjálp þína.

9Þegar Drottinn talar til þjóðar sinnar, hlusta ég vel, þegar hann ávarpar sinn útvalda lýð. Hann flytur okkur frið og velgengni þegar við snúum hjörtum okkar til hans.

10Vissulega njóta þeir hjálpar hans þeir sem hlýða honum og heiðra hann. Velgengni og blessun hans mun breiðast yfir allt landið.

11Miskunn og sannleikur munu mætast, réttlæti og friður kyssast!

12Trúfestin eflist á jörðu og réttlætið brosir frá himni!

13Drottinn blessar landið og það ber margfalda uppskeru.

14Réttlæti og friður fylgir Drottni.

heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

WEBREATH · 11:11

«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25

Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.

WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath