Kristni
til baka

Sálmarnir 84

1Ó, hve musteri þitt er yndislegt, þú Drottinn hersveitanna.

3Mig langar svo mjög, já ég þrái, að nálgast þig, hinn lifandi Guð.

4Jafnvel spörvum og svölum leyfist að búa sér hreiður innan um ölturu þín og eiga þar unga sína. Þú Drottinn hinna himnesku hersveita, konungur minn og Guð minn!

5Sælir eru þeir sem fá að búa í musteri þínu og syngja þér lof.

6Sælir eru þeir sem fá styrk frá þér og þrá það eitt að ganga veg þinn.

7Þegar þeir ganga gegnum táradalinn, þá breytir þú honum í vatnsríka vin og haustregrúð færir þeim blessun.

8Þeir styrkjast á göngunni og fá að lokum að ganga fram fyrir Drottin í musteri hans á Síon.

9Drottinn, Guð hersveitanna, heyrðu bæn mína! Hlusta þú Guð Ísraels.

10Guð, þú ert vörn okkar, miskunna honum sem þú smurðir til konungs.

11Einn dagur í musteri þínu er betri en þúsund aðrir sem eytt er á öðrum stað! Frekar vildi ég vera dyravörður í musteri Guðs míns, en búa í höllum óguðlegra.

12Því að Drottinn er okkur ljós og skjöldur. Vegsemd og náð veitir hann. Hann neitar þeim ekki um nein gæði sem hlýða honum.

13Drottinn hersveitanna, sæll er sá maður sem treystir þér.

heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

WEBREATH · 11:11

«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25

Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.

WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath