Sálmarnir 83
1Guð, vertu ekki þögull og afskiptalaus þegar við biðjum til þín. Svaraðu okkur! Já, bjargaðu okkur!
3Heyrirðu ekki skarkalann og ysinn í hópi óvina þinna? Sérðu ekki hvað þeir aðhafast, þessir hatursmenn þínir?
4Þeir eru með ráðagerðir um að tortíma þeim sem þú elskar!
5„Komum!“ segja þeir, „þurrkum út Ísrael, svo að þeir hætti að vera til og gleymist.“
6Þetta var samþykkt af leiðtogum þeirra. Þessir undirrituðu sáttmála um að fylkja liði gegn almáttugum Guði:
7Ísmaelítar, Edomítar, Móabítar og Hagrítar.
8Einnig Gebalmenn, Ammon, Amalek, Filistear og Týrusbúar.
9Assýría hefur líka slegist í hópinn og gjört bandalag við afkomendur Lots.
10Farðu með þá eins og Midíansmenn forðum, já eins og þú fórst með Sísera og Jabín við Kíshonlæk
11og með óvini þína við Endór, en lík þeirra urðu að áburði á jörðina.
12Láttu höfðingja þeirra falla eins og Óreb og Seeb, foringja þeirra deyja líkt og Seba og Salmúna
13sem sögðu: „Leggjum undir okkur haglendi Drottins!“
14Þú, Guð minn, feyktu þeim burt eins og ryki, eins og hismi fyrir vindi
15– eins og skógi sem brennur til ösku.
16Flæmdu þá burt í óveðri, skelfdu þá með fellibyl þínum.
17Drottinn, láttu þá kenna á andúð þinni uns þeir viðurkenna mátt þinn og vald.
18Láttu öll þeirra verk mistakast, svo að þeir skelfist og blygðist sín
19og viðurkenni að þú einn, Drottinn, ert Guð yfir öllum guðum og að jörðin öll er á þínu valdi.
heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
WEBREATH · 11:11
«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25
Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.
WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath