Sálmarnir 82
1Guð stígur fram á himnum. Hann segir: „Réttur er settur!“ Síðan birtir hann úrskurð sinn gegn dómurum á jörðu.
2Hve lengi ætlið þið, dómarar, að sniðganga réttlætið? Hve lengi ætlið þið að draga taum hinna ranglátu?
3Kveðið upp réttláta dóma í málum hinna fátæku og föðurlausu, bágstöddu og þjáðu,
4Losið fátæklingana úr klóm hinna guðlausu!
5Þið eruð sljóir og fáfróðir og blindir. Þess vegna riðar þjóðfélagið til falls.
6Ég hef kallað ykkur „guði“ og „syni hins hæsta“,
7en í raun og veru eruð þið aðeins dauðlegir menn. Þið munuð falla rétt eins og aðrir af höfðingjunum.
8Rís þú upp, ó Guð, og dæmdu jörðina. Þú hefur hana á valdi þínu og þjóðirnar eru í þinni hendi.
heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
WEBREATH · 11:11
«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25
Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.
WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath