Kristni
til baka

Sálmarnir 7

1Ég treysti þér, Drottinn, Guð minn, að þú frelsir mig frá þeim sem ofsækja mig.

3Þeir vilja ráðast á mig úr launsátri eins og ljón, særa mig og draga burt hálfdauðan. Láttu það ekki takast!

4En Drottinn, ef ég hefði illt fyrir stafni

5– ef ég launaði gott með illu eða beitti nágranna mína órétti,

6þá væri réttlátt að þú létir óvini mína eyða mér, fella mig og fótum troða.

7En Drottinn! Rís þú upp í reiði gegn ofstopa óvina minna. Vakna þú Drottinn! Láttu mig ná rétti mínum!

8Safnaðu saman öllum þjóðum. Taktu þér sæti hátt uppi yfir þeim og dæmdu syndir þeirra. En mig, Drottinn, lýstu mig réttlátan svo allir heyri, auglýstu réttlæti mitt og ráðvendni.

10Stöðvaðu alla illsku, Drottinn, og blessa þá sem í einlægni tilbiðja þig. Því að þú, réttláti Guð, kannar hugarfylgsni mannanna og rannsakar viðhorf þeirra og tilgang.

11Guð er skjöldur minn. Hann mun vernda mig. Hann frelsar þá sem hjartahreinir eru.

12Guð er fullkomlega réttlátur dómari og dag hvern gremst honum illska hinna vondu.

13Ef þeir iðrast ekki mun hann bregða sverði og eyða þeim. Hann hefur spennt boga sinn

14og lagt eldlegar örvar á streng, – banvænar örvar.

15Hinn illi bruggar launráð og íhugar vélabrögð sín. Hann lætur til skarar skríða með lygum og svikum.

16Hann falli á eigin bragði.

17Ofbeldið sem hann ætlaði öðrum, verði honum sjálfum að fjörtjóni.

18Ég lofa og vegsama Drottinn, því hann er góður. Ég vil lofsyngja nafni Drottins, honum sem er öllum drottnum æðri.

heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

WEBREATH · 11:11

«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25

Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.

WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath