Sálmarnir 79
1Guð, – hefur þú ekki heyrt: Heiðingjarnir hafa ráðist inn í land þitt! Musterið hefur verið saurgað og Jerúsalem er rjúkandi rúst!
2Lík þinna manna liggja á bersvæði og eru fæða hræfugla og villidýra!
3Óvinirnir hafa stráfellt íbúa Jerúsalem, svo að allt flýtur í blóði. Enginn er eftir til að grafa hina föllnu.
4Nágrannaþjóðirnar hæða okkur og spotta og ausa svívirðingum.
5Drottinn, hversu lengi ætlar þú að vera okkur reiður? Að eilífu? Á vandlæti þitt að brenna þar til öll von er úti?!
6Úthelltu heldur reiði þinni yfir guðlausu þjóðirnar, ekki okkur! Já, yfir konungsríkin sem ekki ákalla nafn þitt.
7Það eru þau sem hafa útrýmt þjóð þinni og ráðist inn á hvert heimili.
8Við biðjum þig: Láttu okkur ekki gjalda löngu drýgðra synda forfeðranna! Miskunnaðu þig yfir eymd okkar, því að við höfum verið troðnir niður í svaðið!
9Hjálpaðu okkur, því að þú ert frelsari okkar! Hjálpaðu okkur, vegna þíns eigin orðstírs! Frelsaðu okkur og fyrirgefðu okkur syndirnar.
10Hvers vegna fá heiðnu þjóðirnar að hæða okkur og segja: „Hvar er þessi Guð ykkar?!“ Hefndu ófara lýðs þíns svo að eftir verði tekið!
11Hlustaðu á stunur fanganna og hinna dauðadæmdu. Sýndu mátt þinn og frelsaðu þá.
12Drottinn, láttu þá fá sjöfalt endurgjald, þessar þjóðir sem hæða þig og spotta!
13Þá munum við, þjóð þín og gæsluhjörð, lofa þig að eilífu og þakka mikilleika þinn frá kynslóð til kynslóðar.
heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
WEBREATH · 11:11
«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25
Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.
WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath