Kristni
til baka

Sálmarnir 76

1Orðstír Drottins er mikill í Júda og Ísrael.

3Bústaður hans er í Jerúsalem. Hann situr á Síonfjalli.

4Þar sundurbraut hann vopn óvina okkar.

5Öll háreist fjöll blikna í ljóma dýrðar hans!

6Úrvalslið óvinanna er gjörsigrað! Þeir liggja flatir, sofnaðir svefninum langa. Enginn þeirra getur framar lyft hendi.

7Þegar þú, Guð Jakobs, hastaðir á þá, féllu bæði hestar og riddarar.

8Ekki er að undra þótt menn óttist þig! Hver fær staðist reiði Guðs?!

9Þegar þú birtir þeim dóminn frá himnum, þá nötraði jörðin og þagnaði fyrir þér.

10Þú stígur fram til að refsa illgjörðamönnunum, en verndar hina auðmjúku.

11Þegar við sjáum heimsku og reiði mannanna, þá skiljum við enn betur hve dýrð þín er mikil.

12Efnið heitin sem þið gáfuð Drottni, Guði ykkar. Allir sem umhverfis hann eru færa honum gjafir. Þeir nálgast hann með óttablandinni virðingu.

13Hann er sá sem lægir ofstopa höfðingjanna og kemur konungum jarðarinnar á kné!

heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

WEBREATH · 11:11

«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25

Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.

WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath