Sálmarnir 75
1Þökk sé þér Drottinn! Máttarverk þín staðfesta umhyggju þína.
3„Já,“ svarar Drottinn, „og þegar stundin er komin mun ég refsa öllum illgjörðamönnum!
4Þótt jörðin nötri og íbúar hennar skjálfi af ótta, eru undirstöður hennar traustar, enda verk handa minna!“
5Ég sagði hinum hrokafullu að láta af drambi sínu og illmennunum að hætta sínum ögrandi augnagotum,
6að láta af þrjósku og hroka.
7Velgengni og völd getur enginn þakkað sér sjálfum,
8allt eru það gjafir frá Guði. Hann upphefur einn, en niðurlægir annan.
9Drottinn heldur á bikar fullum af freyðandi víni – það er dómurinn gegn illmennum heimsins. Þau skulu drekka hann í botn!
10En ég mun vegsama Guð um aldur og ævi.
11Styrkur hinna óguðlegu verður að engu, en réttlátir skulu ríkja með reisn.
heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
WEBREATH · 11:11
«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25
Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.
WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath