Kristni
til baka

Sálmarnir 6

1Æ, Drottinn! Ekki refsa mér í reiði þinni!

3Miskunnaðu mér því að ég örmagnast. Lækna mig, því að líkami minn er sjúkur.

4Ég er hræddur, veit ekki mitt rjúkandi ráð. Ó, Drottinn, reistu mig á fætur, og það fljótt!

5Komdu Drottinn og læknaðu mig. Bjargaðu mér í kærleika þínum.

6Því að ef ég dey, þá get ég ekki lengur lofað þig meðal vina minna.

7Ég er aðframkominn af kvöl. Hverja nótt væti ég koddann með tárum.

8Augu mín daprast af hryggð vegna illráða óvina minna.

9Farið! Látið mig í friði, þið illmenni, því að Drottinn hefur séð tár mín

10og heyrt grátbeiðni mína. Hann mun svara öllum mínum bænum.

11Óvinir mínir munu verða til skammar og skelfingin mun steypast yfir þá. Guð mun reka þá sneypta burtu.

heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

WEBREATH · 11:11

«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25

Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.

WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath