Kristni
til baka

Sálmarnir 64

1Ó, Drottinn, hlustaðu á neyðaróp mitt, því að hópur af þorpurum og bófum hafa gert samsæri gegn mér. Verndaðu mig!

4Orð þeirra eru eins og rýtingur í bakið. Þeir hvæsa á mig og nísta hjarta mitt.

5Þeir senda mér kaldar kveðjur úr launsátri, vinna verk sín í skyndi, eru hvergi smeykir. Þeir sitja á svikráðum. Hittast á laun og leggja gildrur fyrir aðra. „Þetta sér enginn,“ segja þeir.

7Þeir upphugsa ill verk og segja „Nú er allt klappað og klárt!“ Hjörtu þeirra fyllast illsku og svikum.

8En Guð mun slá þá til jarðar. Eins og hendi sé veifað hittir örin þá

9Tunga þeirra verður þeim að falli. Menn hrista höfuðið yfir þeim og

10ótta slær á alla. Þeir játa mikilleik Guðs og hans voldugu verk, gefa gætur að því sem hann gerir.

11En hinir trúuðu munu fagna í Drottni, leita hjálpar hans og hrósa sigri með honum.

heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

WEBREATH · 11:11

«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25

Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.

WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath