Sálmarnir 62
1Ég bíð rólegur og þögull eftir hjálp Drottins.
3Hann einn er bjarg mitt og lausnari, vörn mín og vígi. Ég hef ekkert að óttast.
4En hvað um þessa menn sem ásaka mig þegar veldi mitt stendur höllum fæti, vilja mig feigan og ljúga og pretta til að steypa mér af stóli. Þeir tala fagurgala, satt er það, en hata mig í hjörtum sínum!
6En ég stend þögull frammi fyrir fyrir Drottni og vænti hjálpar hans. Hann einn getur hjálpað.
7Já, hann einn er bjarg mitt, og lausnari, vörn mín og vígi. Ég hef ekkert að óttast.
8Öryggi mitt og farsæld er í hendi Drottins. Hann einn er skjól mitt og klettur – þangað kemst óvinurinn ekki!
9Þú þjóð mín, treystu Drottni. Segið honum óskir ykkar, hann getur uppfyllt þær!
10Mennirnir miklast og hrokast í hégóma sínum. Einn þykist öðrum meiri, en hann metur alla jafnt.
11Safnið ekki auði með svikum og ránum og treystið ekki illa fengnu fé. Treystið Drottni! Minnist þess aftur og aftur að Drottins er styrkurinn.
13Já, hjá þér Drottinn, er miskunn og þú launar sérhverjum eftir verkum hans.
heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
WEBREATH · 11:11
«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25
Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.
WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath