Kristni
til baka

Sálmarnir 61

1Ó, Guð, heyrðu hróp mitt! Hlustaðu á bæn mína.

3Því að hvar sem ég fer, jafnvel um endimörk jarðar, þá hrópa ég eftir hjálp þinni. Þegar hjarta mitt örmagnast og ég get ekki meir, þá lyftu mér á klett, hjálpræðisbjargið þitt góða, mitt örugga skjól.

4Þú ert skjól mitt, háreist borg, ókleif óvinum.

5Í helgidómi þínum mun ég búa að eilífu, öruggur í skjóli vængja þinna,

6Því að þú, ó Guð, hefur heyrt heit mín og uppfyllt óskir þeirra sem óttast þig og heiðra nafn þitt.

7Þú munt lengja lífdaga mína og láta ævi konungsins vara frá kyni til kyns.

8Ég mun lifa frammi fyrir Drottni að eilífu! Lát elsku þína og trúfesti gæta mín, þá mun ég lofa nafn þitt um aldur og ævi og efna heit mín dag eftir dag.

heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

WEBREATH · 11:11

«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25

Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.

WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath