Kristni
til baka

Sálmarnir 58

1Þið konungar og leiðtogar þjóðanna, talið þið sannleika? Er réttlæti í dómum ykkar og úrskurðum?

3Nei, svo er ekki. Þið eruð allir svikarar sem seljið „réttlæti“ fyrir mútur.

4Slíkir menn hafa allt frá fæðingu vikið af réttum vegi. Þeir hafa talað lygi frá því þeir fengu málið.

5Eiturnöðrur eru þeir, slöngur sem daufheyrast við skipunum særingamannsins.

7Drottinn, slíttu úr þeim eiturbroddinn! Dragðu vígtennurnar úr þessum vörgum, ó Guð.

8Láttu þá hverfa eins og jörðin hafi gleypt þá. Sláðu vopnin úr höndum þeirra.

9Láttu þá þorna upp eins og snigla og ekki sjá sólina frekar en þeir sem andvana eru fæddir.

10Guð mun svipta þeim burt, eyða þeim skjótar en pottur hitnar yfir eldi.

11Þá munu hinir guðhræddu fagna, þegar réttlætið sigrar og þeir fá að ganga um blóðidrifin stræti fallinna óvina.

12Þá munu menn sjá að réttlætið sigrar og að Guð dæmir jörðina með réttvísi.

heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

WEBREATH · 11:11

«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25

Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.

WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath