Kristni
til baka

Sálmarnir 52

1Þennan sálm orti Davíð

2til að andmæla óvini sínum Dóeg sem síðar tók af lífi áttatíu og fimm presta og fjölskyldur þeirra (sjá: 1. Sam. 22.).

3Kallar þú þig hetju?! Þú sem hreykir þér af ódæði gegn þjóð Guðs og herðir þig gegn miskunn hans.

4Þú ert eins og skeinuhættur hnífur, þú svikahrappur!

5Þú elskar illt meir en gott, lygi umfram sannleika.

6Rógburð elskar þú og annað skaðræðistal!

7En Guð mun koma þér á kné, draga þig út úr húsi þínu og uppræta af landi lifenda.

8Hinir réttlátu munu sjá það og óttast Guð, síðan hlægja og segja:

9„Svo fer fyrir þeim sem fyrirlíta Guð og treysta á mátt sinn og megin, þeim sem þrjóskast í illsku sinni.“

10Ég er sem grænt olífutré í garði Guðs. Ég treysti á miskunn hans meðan ég lifi.

11Drottinn, ég vil vegsama þig að eilífu og þakka það sem þú hefur gert. Ég segi hinum trúuðu: Góður er Guð!

heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

WEBREATH · 11:11

«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25

Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.

WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath