Kristni
til baka

Sálmarnir 4

1Þú, Guð réttlætis míns, þú sem hefur annast mig í öllum mínum erfiðleikum. Hlusta nú þegar ég kalla á nýjan leik. Miskunna þú mér. Heyr bæn mína.

3Drottinn Guð spyr: „Þið mannanna börn, ætlið þið endalaust að vanhelga nafn mitt með því að tilbiðja þessa heimskulegu hjáguði? Vitið þið ekki að heiður þeirra er bull og hégómi?“

4Takið eftir: Drottinn hefur sýnt mér mikla náð og hann mun hlusta og svara mér þegar ég kalla.

5Sýnið Drottni óttablandna lotningu og syndgið ekki gegn honum. Hugsið um þetta í hvílum ykkar og verið þögul.

6Setjið traust ykkar á Drottin, og færið honum þóknanlegar fórnir.

7Margir spyrja hvar hjálp sé að fá. Drottinn, þú ert sá sem hjálpar. Láttu ljós þitt lýsa okkur.

8Gleðin sem þú hefur veitt mér er mun meiri en þeirra sem gleðjast yfir ríkulegri uppskeru.

9Nú leggst ég til hvíldar í friði og sofna, því þú, Drottinn verndar mig gegn öllu illu.

heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

WEBREATH · 11:11

«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25

Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.

WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath