Kristni
til baka

Sálmarnir 48

1Mikill er Drottinn! Vegsömum hann, já lofum hann! Hann býr á sínu helga fjalli í Jerúsalem.

3Fallegt er Síonfjall í norðri. Fjallið sem þjóðin elskar, þar sem konungurinn mikli býr.

4Drottinn sjálfur er verndari Jerúsalem.

5Konungar jarðarinnar sátu þar ráðstefnu. Þeir skoðuðu borgina.

6Þeir urðu agndofa, hræddir og flýðu.

7Hátign Jerúsalem skelfdi þá. Þeir urðu magnþrota eins og kona sem fæðir barn!

8Því að með austanvindinum einum tortímir þú heilum her!

9Dýrð þín, Jerúsalem, er á allra vörum. Þú ert borgin þar sem Guð býr, hann sem ríkir yfir hersveitum himinsins. Við höfum séð hana eigin augum! Guð hefur reist Jerúsalem. Hún mun standa að eilífu.

10Drottinn, í musterinu hugleiðum við kærleika þinn.

11Nafn þitt er þekkt um alla jörðina. Þú ert lofaður um víða veröld vegna hjálpræðis þíns. Vegsemd þín breiðist um allan heim því alls staðar framkvæmir þú réttlætisverk.

12Gleð þig, Jerúsalem! Gleð þig Júdaættkvísl! Því að Guð mun vissulega láta þig ná rétti þínum.

13Komið og skoðið borgina! Gangið um og teljið turnana!

14Lítið á múrinn og sjáið hallirnar og segið komandi kynslóð frá því að slíkur sé Drottinn! Hann mun leiða okkur um aldur og ævi.

heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

WEBREATH · 11:11

«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25

Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.

WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath