Kristni
til baka

Sálmarnir 47

1Komið allar þjóðir! Klappið saman höndum af gleði! Hrópið af fögnuði fyrir Guði!

3Drottinn er æðri öllum guðum. Hann er ógurlegur. Honum verður ekki með orðum lýst. Hann er konungur til endimarka jarðarinnar.

4Hann hefur beygt þjóðir undir sig

5og valið úr yndislegt land og gefið okkur, þjóð sinni, Ísrael.

6Guð er stiginn upp með miklu hrópi og hvellum lúðurhljómi.

7Lofsyngið Guði, konungi okkar. Já, syngið lofgjörðarsöng fyrir konunginn, konung allrar jarðarinnar. Lofsyngið Guði!

9Hann ríkir yfir þjóðunum. Hann situr á hásæti sínu.

10Leiðtogar heimsins koma og taka undir lofgjörðina með lýð Guðs Abrahams. Skjaldarmerki þjóðanna eru sigurtákn hans. Hann er mjög upphafinn. Hann er konungur alls heimsins.

heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

WEBREATH · 11:11

«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25

Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.

WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath