Sálmarnir 46
1Guð er mér hæli og styrkur, örugg hjálp í nauðum.
3Þess vegna óttumst við ekki, þótt heimurinn farist og fjöllin steypist í hafið.
4Hafið æði og freyði, fjöllin nötri og skjálfi!
5Lækir gleðinnar streyma frá borg Guðs – frá heilögum bústað Guðs hins hæsta.
6Hér býr Guð, hún mun ekki haggast. Þegar þörf er á, kemur Guð henni til hjálpar.
7Þjóðir risu upp og létu ófriðlega en þegar Guð talaði varð heimurinn að þagna og jörðin nötraði.
8Drottinn, hann sem ræður hersveitum himinsins, er hér! Hann er á meðal okkar! Hann, Guð Jakobs, er kominn til að hjálpa.
9Komið og sjáið máttarverk hans á jörðinni.
10Hann stöðvar styrjaldir um víða veröld, brýtur vopnin og kastar á eld.
11„Þögn! Standið kyrr! Vitið að ég er Guð! Allar þjóðir heims syni mér lotningu.“
12Drottinn hersveita himinsins er hér, hann er á meðal okkar! Hann, Guð Jakobs, er hér til að frelsa!
heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
WEBREATH · 11:11
«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25
Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.
WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath