Sálmarnir 45
1Hjarta mitt svellur af fögrum orðum. Ég vil flytja konungi ljóð. Tunga mín er penni hraðritarans, hún flytur langa sögu á augabragði:
3Þú ert fegurri en mannanna börn. Blessun streymir um varir þínar. Velþóknun Guðs er yfir þér að eilífu.
4Þú hetja, tak herklæði þín, máttugur ertu og krýndur ljóma
5Sæktu fram! Sigursæll ertu, vörður tryggðar og réttlætis. Gakk fram – máttarverk þín verði á allra vörum!
6Örvar þínar eru hvesstar, óvinir falla að fótum þér.
7Hásæti þitt, ó Guð, stendur um eilífð. Réttlætið er sproti þinn.
8Þú elskar hið góða hefur andstyggð á illsku. Því hefur Guð, þinn Guð, sveipað þig gleði sem engan annan.
9Skikkja þín ilmar af myrru, alóe og kassíu. Hallir þínar eru skreyttar fílabeini og fyllast af ljúfum tónum.
10Konungadætur eru í hópi vinkvenna þinna. Drottningin stendur þér við hlið, fagurlega klædd og skreytt skíra gulli frá Ófír!
11„Dóttir mín, hlustaðu. Ég vil gefa þér ráð: Gleymdu heimþránni, vertu ekki döpur. Konungurinn elskar þig og gleðst yfir fegurð þinni. Sýndu honum lotningu því hann er herra þinn.
13Íbúar Týrus, baða þig í gjöfum og auðmenn þjóðarinnar leita hylli þinnar.“
14Brúðurin – konungsdóttir – bíður í skrauthýsi sínu, íklædd fegursta djásni, kjól skreyttum gulli og perlum.
15Fögur er hún! Meyjarnar leiða hana á fund konungs.
16Þær fara í skrúðgöngu gegnum hliðið. Þarna er höllin!
17„Synir þínir verða allir konungar og feta í fótspor föður síns. Þeir munu sitja á hásætum víðs vegar um heim!“
18„Ég mun gera nafn þitt kunnugt meðal allra kynslóða og þjóðir jarðarinnar munu hylla þig að eilífu.“
heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
WEBREATH · 11:11
«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25
Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.
WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath