Kristni
til baka

Sálmarnir 38

1Drottinn, ekki refsa mér, þótt þú sért reiður.

3Örvar þínar standa í mér og hönd þín liggur þungt á mér.

4Vegna reiði þinnar er ég sjúkur maður, heilsa mín er farin vegna synda minna. Syndir mínar líkjast flóði sem færir mig í kaf, eins og byrði sem ég kikna undan.

6Ólykt leggur af sárum mínum – það er drep í þeim. Ég er ráðþrota vegna synda minna. Ég ráfa um í angist liðlangan daginn.

8Lendar mínar brenna af sviða og líkami minn er helsjúkur.

9Máttur minn er þrotinn og ég er örvæntingu nær.

10Drottinn, ég þrái bót á meini mínu! Þú heyrir kvein mín og andvörp.

11Hjartað hamast í brjósti mér, kraftar mínir búnir og sjónin dvín.

12Ástvinir mínir og góðir grannar forðast sjúkdóm minn og böl og frændur mínir eru á bak og burt.

13Óvinir mínir sæta færis að drepa mig. Liðlangan daginn sitja þeir á svikráðum, brugga mér banaráð.

14En illráð þeirra verka ekki á mig! Ég virði þá ekki viðlits. Áform þeirra rætast ekki,

16því að ég vona á þig, Drottinn, Guð minn. Kom þú og vernda mig.

17Þaggaðu niður í þeim sem hlæja að óförum mínum.

18Ég er að falli kominn og angist mín er enn hin sama.

19Ég játa syndir mínar og iðrast þess sem ég hef gert.

20En ofsóknum óvina minna linnir ekki og heift þeirra minnkar ekki. Þeir hata mig án ástæðu.

21Þeir launa mér gott með illu, hata mig fyrir góðverk mín.

22Yfirgefðu mig ekki, Drottinn. Vík ekki frá mér!

23Komdu skjótt og hjálpaðu mér, þú frelsari minn!

heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

WEBREATH · 11:11

«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25

Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.

WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath