Kristni
til baka

Sálmarnir 32

1Hvílík náð að fá syndir sínar fyrirgefnar! Það er dásamlegt þegar afbrotin eru strikuð út! En sá léttir hverjum játandi syndara að heyra Drottin segja: „Ég sýkna þig.“

3Sú var tíðin að ég þrjóskaðist við og neitaði að iðrast. En synd mín kvaldi mig og nagaði öllum stundum.

4Ég var friðlaus bæði nætur og daga og fann að Drottinn áminnti mig. Styrkur minn þvarr eins og lækur sem þornar á heitu sumri.

5Að lokum játaði ég synd mína fyrir þér, viðurkenndi afbrotin. Ég sagði: „Ég vil játa það allt fyrir Drottni,“ og þá fyrirgafstu mér! Sekt mín var strikuð út!

6Þess vegna segi ég: Þú sem trúir, játaðu synd þína strax fyrir Guði, já, strax og samviskan angrar þig. Notaðu tímann meðan fyrirgefning Guðs stendur þér til boða. Annars vofir dómurinn yfir þér.

7Þú ert skjól mitt í andstreymi lífsins og lausn í nauðum og vanda. Með frelsisfögnuði umlykur þú mig.

8Drottinn segir: „Ég vil fræða þig og vísa þér veginn gegnum lífið. Ég vil gefa þér ráð og fylgjast með framför þinni.

9Vertu ekki eins og þrjóskur hestur! Með taum og beisli verður að temja hann.“

10Miklar eru þjáningar syndugs manns, en þá sem treysta Drottni umlykur hann elsku.

11Gleðjist yfir Guði, þið sem á hann trúið, og rekið upp fagnaðaróp, þið sem honum hlýðið!

heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

WEBREATH · 11:11

«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25

Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.

WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath