Kristni
til baka

Sálmarnir 2

1Hvílík heimska að þjóðirnar skuli ráðast gegn Drottni! Furðulegt að menn láti sér detta í hug að þeir séu vitrari en Guð!

2Leiðtogar heimsins hittast og ráðgera samsæri gegn Drottni og Kristi konungi.

3„Komum,“ segja þeir, „og vörpum af okkur oki hans. Slítum okkur lausa frá Guði!“

4En á himnum hlær Guð að slíkum mönnum! Honum er skemmt með þeirra fánýtu ráðagerðum.

5Hann ávítar þá í reiði sinni og skýtur þeim skelk í bringu. Drottinn lýsir yfir:

6„Þennan konung hef ég útvalið og krýnt í Jerúsalem, minni helgu borg“. Hans útvaldi svarar:

7„Ég mun kunngera áform Guðs, því að Drottinn sagði við mig: „Þú ert sonur minn. Í dag verður þú krýndur. Í dag geri ég þig dýrlegan“.“

8„Bið þú mig og ég mun leggja undir þig öll ríki heimsins.

9Stjórnaðu þeim með harðri hendi og mölvaðu þau eins og leirkrukku!“

10Þið, konungar jarðarinnar! Hlustið meðan tími er til!

11Þjónið Drottni með óttablandinni lotningu og fagnið með auðmýkt.

12Fallið á kné fyrir syni hans og kyssið fætur hans svo að hann reiðist ekki og tortími ykkur!

13Gætið ykkar, því að senn mun blossa reiði hans. En munið þetta: Sæll er hver sá sem leitar ásjár hjá honum.

heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

WEBREATH · 11:11

«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25

Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.

WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath