Sálmarnir 29
1Þið englar Drottins, lofið hann í mætti hans og dýrð!
2Lofið hann í mikilleik dýrðar hans, þeirri dýrð er stafar af nafni hans. Tilbiðjið hann í helgum skrúða.
3Raust Drottins fyllir himininn, hún kveður við eins og þruma!
4Rödd hans hljómar kröftuglega, hún hljómar af mikilleik og tign.
5Hún fellir sedrustrén til jarðar og klýfur hin hávöxnu tré í Líbanon. Raust Drottins skekur fjöllin í Líbanon og hristir Hermonfjall. Hans vegna hoppa þau um eins og ungir kálfar!
7Rödd Drottins kveður við í eldingunni og endurómar í eyðimörkinni sem nötrar endanna á milli.
9Raust Drottins skekur skógartrén, feykir burt laufi þeirra og lætur hindirnar bera fyrir tímann. Allir þeir sem standa í helgidómi hans segja: „Dýrð! Já, dýrð sé Drottni!“
10Flóðið mikla var ógurlegt, en Drottinn er enn meiri! Og enn birtir hann mátt sinn og kraft.
11Hann mun veita lýð sínum styrkleik og blessa hann með friði og velgengni.
heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
WEBREATH · 11:11
«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25
Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.
WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath