Kristni
til baka

Sálmarnir 27

1Drottinn er ljós mitt og frelsari, hvern ætti ég að óttast? Hann er skjól mitt og vígi, og því hræðist ég ekki.

2Þegar illmenni reyna að uppræta mig, þá hrasa þeir sjálfir og falla.

3Þótt voldugur her umkringi mig á alla vegu, þá óttast ég ekki hót! Ég er öruggur og veit að Guð mun frelsa mig.

4Drottinn, þetta þrái ég mest af öllu: Að hugleiða í helgidómi þínum, og vera frammi fyrir þér alla mína ævidaga. Þar vil ég gleðjast yfir dýrð hans og fullkomnun, hún er engu lík!

5Þar verð ég öruggur á óheilladeginum – öruggur í skjóli Drottins. Hann lyftir mér upp á háan klett

6þar sem óvinirnir ná ekki til mín. Þá mun ég færa honum fórnir og lofa hann fagnandi.

7Drottinn, heyrðu hróp mitt! Ég kalla hátt! Sendu mér miskunn þína og hjálp!

8Drottinn, ég minnist þess sem þú sagðir: „Þú þjóð mín, kom þú og leitaðu mín.“ „Já, Drottinn! Ég kem!“ svara ég.

9Drottinn, hyl þig ekki fyrir mér. Hafnaðu ekki þjóni þínum í reiði. Þú varst mér skjól þegar á móti blés, yfirgefðu mig ekki. Hafnaðu mér ekki, þú Guð hjálpræðis míns.

10Þótt faðir minn og móðir vísuðu mér á bug, þá tækir þú mér tveim höndum og huggaðir mig.

11Drottinn, hvað á ég til bragðs að taka? Svaraðu mér fljótt! Óvinir umkringja mig!

12Láttu þá ekki ná mér, Drottinn! Láttu mig ekki falla þeim í hendur! Þeir ásaka mig að ástæðulausu og sitja á svikráðum við mig.

13En ég treysti því að Drottinn frelsi mig og að ég sjái hjálp hans, því að enn er von, – enn er ég á lífi!

14Þú, hver sem þú ert, misstu ekki vonina! Treystu Drottni og hann mun frelsa þig! Vertu hugrakkur og djarfur og óttastu ekki. Bíddu um stund og hann mun senda þér hjálp!

heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

WEBREATH · 11:11

«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25

Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.

WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath