Kristni
til baka

Sálmarnir 26

1Drottinn, láttu mig ná rétti mínum, því að ég hef kappkostað að halda boð þín og treyst þér af öllu hjarta.

2Rannsakaðu mig yst sem innst, Drottinn, og prófaðu viðhorf mín og einlægni.

3Afstaða mín til lífsins og allra hluta mótaðist hjá þér. Þú kenndir mér elsku og sannleika.

4Ég forðast félagsskap hræsnara og þeirra sem tala lygi.

5Ég hef andstyggð á samkundum syndaranna og stíg ekki fæti þar inn.

6Ég þvæ hendur mínar, gef til kynna sakleysi mitt og geng að altari þínu

7með þakkargjörð á vörum, minnugur máttarverka þinna.

8Drottinn, ég elska hús þitt – helgidóminn þar sem dýrð þín birtist!

9Láttu mér ekki farnast eins og syndurum og morðingjum eða þeim sem beita saklausa menn vélráðum og heimta mútur.

11Nei, með slíkum á ég enga samleið. Ég geng hinn beina, en bratta veg sannleikans. Miskunna mér og frelsa mig.

12Opinskátt og í áheyrn allra lofa ég Drottin, hann sem ver mig hrösun og falli.

heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

WEBREATH · 11:11

«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25

Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.

WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath