Sálmarnir 24
1Jörðin er eign Drottins og allt sem á henni er, – heimurinn og þeir sem í honum búa.
2Það var hann sem safnaði vötnunum saman svo að hafið varð til og þurrlendið birtist.
3Hver fær að stíga upp á fjall Drottins og ganga inn í bústað hans? Hver fær staðist frammi fyrir honum?
4Aðeins þeir sem hafa hreint hjarta og óflekkaðar hendur, heiðarlegt fólk sem segir sannleikann.
5Þeir munu njóta gæsku Guðs, og hann, frelsari þeirra, mun lýsa þá réttláta.
6Það eru þeir sem fá að standa frammi fyrir Drottni og tilbiðja hann, Guð Jakobs.
7Opnist þið fornu dyr! Konungur dýrðarinnar vill ganga inn.
8Hver er konungur dýrðarinnar? Það er Drottinn, hinn voldugi og sterki, sigurhetjan.
9Já, opnist þið ævafornu dyr fyrir konungi dýrðarinnar!
10Hver er þessi konungur dýrðarinnar? Drottinn, sá er ræður öllum hersveitum himnanna, hann er konungur dýrðarinnar!
heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
WEBREATH · 11:11
«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25
Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.
WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath