Sálmarnir 21
1Drottinn! Yfir valdi þínu og mætti fagnar konungurinn. Hann gleðst stórlega yfir hjálp þinni!
3Því að þú hefur veitt honum það sem hjarta hans þráir, allt sem hann bað þig um!
4Þú leiddir hann til valda og veittir honum velgengni og blessun. Þú krýndir hann kórónu úr gulli.
5Hann bað um langa ævi og góða daga og þú heyrðir bænir hans. Ævidagar hans munu aldrei taka enda!
6Frægð og frama gafst þú honum, íklæddir hann vegsemd og dýrð.
7Þú veitir honum eilífa blessun og gleður hann með nærveru þinni meira en orð fá lýst.
8Konungurinn treystir Drottni og því mun hann aldrei hrasa né falla. Hann reiðir sig á elsku og trúfesti þess Guðs sem er æðri öllum guðum.
9Drottinn, hönd þín mun ná öllum óvinum þínum og hatursmönnum.
10Þegar þú stígur fram eyðast þeir í eldinum sem út frá þér gengur. Drottinn mun afmá þá og afkomendur þeirra.
12Samsæri hafa þeir gert gegn þér Drottinn, en það mun ekki takast.
13Þegar þeir sjá boga þinn spenntan, flýja þeir sem fætur toga.
14Drottinn, þinn er mátturinn og dýrðin! Heyr þú lofgjörð okkar! Um máttarverk þín syngjum við og kveðum!.
heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
WEBREATH · 11:11
«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25
Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.
WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath