Sálmarnir 20
1Drottinn sé með þér og bænheyri þig á degi neyðarinnar! Guð Jakobs frelsi þig frá allri ógæfu.
3Hann sendi þér hjálp frá helgidómi sínum, styðji þig frá Síon.
4Hann minnist með gleði gjafa þinna og brennifórna.
5Hann veiti þér það sem hjarta þitt þráir og láti öll þín áform ná fram að ganga.
6Þegar við fréttum um sigur þinn, munum við hrópa fagnaðaróp og veifa fánanum Guði til dýrðar, því að mikla hluti hefur hann gert fyrir þig. Hann veiti svör við öllum þínum bænum!
7Guð blessi konunginn! – Já, það mun hann vissulega gera! í himinhæðum heyrir hann bæn mína og veitir mér mikinn sigur.
8Hinir stæra sig af herstyrk og vopnavaldi, en við af Drottni, Guði.
9Þjóðir þessar munu hrasa og farast, en við rísa og standa traustum fótum.
10Drottinn, sendu konungi okkar sigur! Drottinn, heyr þú bænir okkar.
heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
WEBREATH · 11:11
«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25
Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.
WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath