Kristni
til baka

Sálmarnir 19

1Himnarnir sýna okkur dýrð Guðs. Þeir eru þögull vitnisburður um mikilleik verka hans.

3Dagur og nótt vitna um vísdóm Drottins.

4Hljóðlaust og án orða bera þau boðin um gervalla jörðina. Sólin fer sína braut um loftin – einmitt þá sem Drottinn setti henni í upphafi.

6Hnarreist siglir hún yfir hvolfið, geislandi eins og brúður í brúðkaupi eða hlaupari sem hlakkar til að renna sitt skeið.

7Sólin fer um himininn frá austri til vesturs, ekkert fær dulist við geislaflóð hennar og yl.

8Lög Guðs eru fullkomin. Þau vernda og auka skilning, gleðja og lýsa.

10Lög Guðs eru eilíf, réttlát og hrein.

11Þau eru dýrmætari en gull. Þau eru sætari en hunang.

12Því að þau vara okkur við hættum og efla velgengni þeirra sem hlýða þeim.

13Hver verður var við syndina sem loðir við hjarta mitt? Hreinsa mig af leyndum syndum.

14Forða mér frá vondum mönnum, og stöðva hönd mína að ég geri ekkert ljótt. Sýknaðu mig af syndum mínum svo að ég lifi hreinu lífi.

15Ó, að orðin á vörum mér og hugsanir mínar geðjist þér, þú Guð, klettur minn og frelsari.

heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

WEBREATH · 11:11

«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25

Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.

WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath