Kristni
til baka

Sálmarnir 14

1En sá heimskingi sem segir: „Guð er ekki til!“ Sá er líka bæði illur og spilltur og einskis góðs af honum að vænta.

2Drottinn horfir niður af himnum og virðir fyrir sér mennina, hvort einhver sé skynsamur og geri vilja hans.

3Nei, það gerir enginn þeirra. Allir eru þeir viknir af leið, allir spilltir af synd. Enginn er raunverulega góður, ekki einn einasti!

4Þeir kúga og kvelja þjóð mína og dettur ekki í hug að ákalla mig! Skyldu þeir ekki fá að kenna á því illgjörðamennirnir?

5Þeir munu óttast þegar þeir sjá að Guð er með þeim sem elska hann.

6Hann er skjól hinna hrjáðu og hógværu þegar illgjörðamenn ofsækja þá.

7Ó, að lausnardagur þeirra væri nú þegar kominn! Að Guð kæmi frá bústað sínum á Síon til bjargar þjóð sinni. En sá gleðidagur þegar Drottinn frelsar Ísrael!

heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

WEBREATH · 11:11

«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25

Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.

WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath