Sálmarnir 144
1Lofaður sé Drottinn! Hann er bjargið sem líf mitt er byggt á! Hann gefur mér kraft og leikni í bardaga.
2Hann er miskunn mín. Hann er vígi mitt, borg mín og hjálpari, skjöldur minn og athvarf. Hann leggur þjóðir undir mig.
3Drottinn, hvers virði er maðurinn að þú ómakir þig og minnist hans? Hvers vegna skyldir þú yfirleitt skipta þér af fólki?
4Því að maðurinn er eins og vindblær, dagar hans eins og hverfandi skuggi.
5Drottinn, sveigðu himininn og stígðu niður! Þegar þú tyllir þér á fjöllin þá rýkur úr þeim.
6Láttu eldingar leiftra, – skjóttu örvum þínum og tvístraðu óvinunum!
7Réttu hönd þína niður og frelsaðu mig, dragðu mig upp úr hinum djúpu vötnum, undan ofurvaldi óvinanna.
8Munnur þeirra er fullur af svikum og með hægri hönd sinni innsigla þeir lygi.
9Ég vil syngja þér nýjan söng, ó Guð, og leika undir á tístrengjaða hörpu,
10því að þú veitir konungum okkar sigur. Þú frelsar þjón þinn Davíð undan sverði dauðans.
11Bjargaðu mér! Frelsaðu mig undan óvinum þessum, þeir bæði ljúga og svíkja.
12Nú vil ég lýsa landinu þar sem Drottinn er Guð – hamingjulandinu! Þar eru synirnir hraustir og stæltir eins og þróttmikil tré. Dæturnar fagrar og prúðar eins og úthöggnar hallarsúlur. Hlöðurnar fullar af alls konar afurðum. Hjarðir þúsunda sauða liðast um hagana. Uxarnir eru klyfjaðir og ekkert skarð í múrnum. Friður hvert sem litið er, enginn maður í útlegð og glæpir horfnir af strætunum. Já, sæl er sú þjóð sem á Drottin að Guði.
heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
WEBREATH · 11:11
«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25
Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.
WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath