Sálmarnir 141
1Drottinn, þú hefur hlustað á bæn mína, svaraðu mér fljótt! Heyr þegar ég hrópa til þín eftir hjálp.
2Líttu á bæn mína sem kvöldfórn, eins og reykelsi sem stígur upp til þín.
3Hjálpaðu mér, Drottinn, að gæta munns míns – innsiglaðu varir mínar!
4Frelsaðu mig frá löngun í hið illa. Forðaðu mér frá félagsskap við syndara og þeirra vondu verkum. Láttu mig sneiða hjá svallveislum þeirra.
5Hirting frá guðhræddum manni er mér til góðs – hún er áhrifaríkt læknislyf! Ég vil ekki hlusta á hrós vondra manna. Ég bið gegn illsku þeirra og svikum.
6Þegar foringjar þeirra fá sinn dóm, þegar þeim verður hrint fram af kletti, þá munu menn þessir hlusta á viðvörun mína og skilja að ég vildi þeim vel.
8Drottinn, ég horfi til þín í von um hjálp. Þú ert skjól mitt. Láttu þá ekki tortíma mér.
9Forðaðu mér frá gildrum þeirra.
10Hinir óguðlegu falli í eigin net, en ég sleppi heill á húfi.
heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
WEBREATH · 11:11
«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25
Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.
WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath