Kristni
til baka

Sálmarnir 140

1Ó, Drottinn, frelsaðu mig frá vondum mönnum. Verndaðu mig gegn ofbeldismönnunum

3sem sitja á svikráðum alla daga og vekja ófrið.

4Orð þeirra eru eins og eitruð höggormsbit.

5Varðveittu mig gegn ofbeldi þeirra og svikráðum.

6Þessir ofríkismenn hafa lagt gildru fyrir mig, sett út snöru sína. Þeir bíða þess að geta kastað yfir mig neti, flækja mig í möskva sína.

7Ó, Drottinn, þú ert minn Guð! Hlustaðu á grátbeiðni mína! Láttu ekki svikráð níðinganna heppnast.

9Láttu þá ekki ná árangri eða hreykja sér hátt.

10Svikráð þeirra komi þeim sjálfum í koll!

11Eldsglóðum rigni yfir þá. Steyptu þeim í gjár sem þeir komast ekki úr.

12Láttu lygara einskis ávinnings njóta í landi okkar, en refsaðu þeim í skyndi.

13Drottinn mun örugglega rétta hlut fólks sem þolað hefur ofsóknir þeirra, hann mun flytja mál hinna snauðu.

14Hinir guðhræddu þakka þér. Þeir fá að lifa í nálægð þinni.

heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

WEBREATH · 11:11

«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25

Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.

WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath