Sálmarnir 138
1Drottinn, ég þakka þér af öllu hjarta! Ég vil lofsyngja þér í áheyrn englanna á himnum.
2Ég vil falla fram fyrir þínu heilaga musteri, þakka þér elsku þína og trúfesti, og loforð þín sem þú hefur innsiglað með þínu mikilfenglega nafni.
3Þegar ég bið, þá heyrir þú bænir mínar, styrkir mig og hughreystir.
4Konungar jarðarinnar skulu þakka þér, Drottinn, því að allir heyra þeir rödd þína.
5Já, þeir skulu syngja um verk Drottins, því að mikil er dýrð hans.
6En þótt Drottinn sé mikill, þá lýtur hann að hinum lítilmótlegu, en hrokafullir halda sig fjarri.
7Þótt ég sé umvafinn erfiðleikum, muntu sjá um að allt fari vel. Þú réttir fram hnefann gegn óvinum mínum. Kraftur þinn mun frelsa mig.
8Drottinn mun leysa úr öllum mínum málum – því að Drottinn, miskunn þín varir að eilífu. Yfirgef mig ekki, því að ég er verk handa þinna.
heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
WEBREATH · 11:11
«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25
Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.
WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath