Kristni
til baka

Sálmarnir 136

1Þakkið Drottni, því að hann er góður, miskunn hans varir að eilífu!

2Þakkið Guði guðanna, því að miskunn hans varir að eilífu.

3Þakkið Drottni drottnanna, því að miskunn hans varir að eilífu.

4Lofið hann sem einn gjörir furðuverk, því að miskunn hans varir að eilífu.

5Lofið hann sem skapaði himininn, því að miskunn hans varir að eilífu.

6Lofið hann sem aðskildi höf og lönd, því að miskunn hans varir að eilífu.

7Lofið hann sem skapaði ljósgjafa himinsins, því að miskunn hans varir að eilífu.

8Sólina til að ráða deginum, því að miskunn hans varir að eilífu

9og tunglið og stjörnurnar til að ráða um nætur, því að miskunn hans varir að eilífu.

10Lofið Guð sem laust frumburði Egypta, því að miskunn hans við Ísrael varir að eilífu.

11Hann leiddi þá út með mætti sínum og sinni voldugu hendi, því að miskunn hans við Ísrael varir að eilífu.

13Lofið Drottin sem opnaði þeim leið gegnum Rauðahafið, því að miskunn hans – varir að eilífu,

15en drekkti í hafinu hersveitum faraós, því að miskunn hans við Ísrael varir að eilífu.

16Lofið hann sem leiddi lýð sinn yfir auðnina, því að miskunn hans varir að eilífu.

17Lofið hann sem frelsaði lýð sinn undan voldugum konungum, því að miskunn hans varir að eilífu

18og laust þá til dauða, þessa óvini Ísraels, því að miskunn hans við Ísrael varir að eilífu:

19Síhon, Amoríta-konung, því að miskunn Guðs við Ísrael varir að eilífu

20– og Óg, konung í Basan – því að miskunn hans við Ísrael varir að eilífu.

21Guð gaf Ísrael lönd þessara konunga til eilífrar eignar, því að miskunn hans varir að eilífu.

22Já, þau skyldu verða varanleg gjöf til Ísrael, þjóns hans, því að miskunn hans varir að eilífu.

23Hann minntist okkar í eymd okkar, því að miskunn hans varir að eilífu

24og frelsaði okkur frá óvinum okkar, því að miskunn hans varir að eilífu.

25Hann gefur fæðu öllu því sem lifir, því að miskunn hans varir að eilífu.

26Já, færið Guði himnanna þakkir, því að miskunn hans varir að eilífu!

heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

WEBREATH · 11:11

«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25

Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.

WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath