Kristni
til baka

Sálmarnir 135

1Hallelúja! Lýður Drottins lofi hann í forgörðum musteris hans.

3Lofið Drottin því að hann er góður, vegsamið hans dýrlega nafn.

4Því að Drottinn hefur kosið Ísrael sér að eignarlýð.

5Ég þekki mikilleik Drottins – að hann er öllum guðum æðri.

6Það sem honum þóknast, það gerir hann á himni, á jörðu og einnig í hafdjúpunum!

7Hann lætur skýin stíga upp af jörðinni og eldinguna leiftra svo að rigni; og vindana lætur hann blása úr forðabúrum sínum.

8Hann laust frumburði Egyptalands, bæði menn og dýr.

9Undur og tákn gerði hann í augsýn Faraó og þjóna hans.

10Fjölmennar þjóðir lagði hann að velli, felldi volduga konunga

11– Síhon, Amoríta-konung og Óg, konung í Basan og konunga Kanaanslands

12og gaf Ísrael lönd þeirra til eilífrar eignar.

13Ó, Drottinn, nafn þitt varir að eilífu! Frægð Drottins er kunn frá kynslóð til kynslóðar,

14því að hann réttir hlut þjóðar sinnar og miskunnar þjónum sínum.

15Heiðingjarnir tilbiðja skurðgoð úr gulli og silfri, handaverk manna

16– mállaus og sjónlaus skurðgoð,

17sem hvorki heyra né draga andann.

18Smiðir þeirra líkjast þeim og þeir sem tilbiðja þau.

19Ísrael, lofa þú Drottin! Æðstuprestar Arons, vegsamið nafn hans,

20og einnig þið prestar af Levíætt. Já, lofið nafn hans, öll þið sem treystið honum og óttist hann.

21Þið íbúar Jerúsalem, lofið Drottin, hann sem býr í Jerúsalem! Hallelúja!

heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

WEBREATH · 11:11

«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25

Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.

WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath