Sálmarnir 127
1Ef hús er ekki byggt að ráði Drottins, erfiða smiðirnir til ónýtis. Ef Drottinn verndar ekki borgina, vaka verðirnir til einskis.
2Hvers vegna þrælar þú myrkranna á milli af ótta við skort? Veistu ekki að Guð vill að vinir hans fái þá hvíld sem þeir þarfnast? Á meðan þeir sofa, blessar hann þá með gjöfum.
3Börnin eru gjöf frá Guði, ávöxtur móðurkviðar og laun frá Drottni.
4Börn sem maður eignast ungur, eru eins og beittar örvar – þau koma síðar að gagni! Sæll er sá maður sem hefur fyllt örvamæli sinn með þeim! Hann mun ekki verða til skammar þegar hann þarf að útkljá deilumál við óvini sína!
heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
WEBREATH · 11:11
«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25
Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.
WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath