Sálmarnir 116
1Ég elska Drottin, því að hann heyrir bænir mínar – og svarar þeim.
2Meðan ég dreg andann mun ég biðja til hans, því að hann lítur niður og hlustar á mig.
3Ég horfðist í augu við dauðann – var hræddur og hnípinn.
4Þá hvíslaði ég: „Drottinn, frelsaðu mig!“
5Náðugur er Drottinn og góður er hann!
6Drottinn hlífir vondaufum og styrkir hjálparvana.
7Nú get ég slakað á og verið rór, því að Drottinn hefur gert mikla hluti fyrir mig.
8Hann hefur bjargað mér frá dauða, augum mínum frá gráti og fótum mínum frá hrösun.
9Ég fæ að lifa! Já, lifa með honum hér á jörðu!
10Þegar ég átti erfitt hugsaði ég: Þeir segja ósatt, að allt muni snúast mér í hag.
12En nú, hvernig get ég nú endurgoldið Drottni góðverk hans við mig?
13Ég vil lyfta bikarnum og vínberjalegi að fórn, þakka honum lífið.
14Fórnina sem ég lofaði Drottni, færi ég nú í allra augsýn.
15Hann elskar vini sína og lætur þá ekki deyja án gildrar ástæðu.
16Drottinn, þú hefur leyst fjötra mína, því vil ég þjóna þér af öllu hjarta.
17Ég vil lofa þig og færa þér þakkarfórn.
18Í forgörðum musteris Drottins í Jerúsalem vil ég – og það í augsýn allra – færa honum allt sem ég hafði lofað. Dýrð sé Drottni!
heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
WEBREATH · 11:11
«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25
Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.
WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath