Sálmarnir 112
1Dýrð sé Guði! Að trúa á Guð og treysta honum veitir ómælda blessun. Sæll er sá maður sem hefur unun af boðorðum hans.
2Börn hans njóta hvarvetna heiðurs, því að góður arfur eflir göfugan mann.
3Sjálfur býr hann við auðlegð og góðverk hans gleymast ekki.
4Réttlátum er hann ljós í myrkri – miskunn hans og gæska eru augljós.
5Sá mun blessun hljóta sem er góðgjarn og fús að lána og framkvæmir verk sín með réttvísi.
6Slíkur maður verður ekki fórnarlamb illra atvika. Umhyggja Guðs fyrir honum verður umræðuefni þeirra sem þekkja hann.
7Hann óttast ekki vondar fréttir, né kvíðir því sem koma skal. Hann er öruggur og veit að Drottinn annast hann.
8Þess vegna óttast hann ekkert og horfir á óvini sína með stakri ró.
9Hann hefur miðlað mildilega og gefið fátækum. Góðverk hans munu ekki gleymast. Hann mun njóta vinsælda og hafa áhrif.
10Þetta sjá óguðlegir og þeim gremst. Þeir munu gnísta tönnum og tortímast og óskir þeirra rætast ekki.
heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
WEBREATH · 11:11
«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25
Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.
WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath