Kristni
til baka

Sálmarnir 111

1Hallelúja! Ég þakka Guði máttarverk hans, já, í áheyrn og augsýn allrar þjóðarinnar. Allir sem vilja, íhugi þetta ásamt mér.

3Því að máttarverkin lýsa mikilleika hans, hátign og eilífum kærleika.

4Hver getur gleymt dásemdarverkum hans, miskunn hans?

5Hann annast þarfir þeirra sem honum treysta og gleymir ekki loforðum sínum.

6Hann sýndi mátt sinn er hann gaf þjóð sinni landið Ísrael – land sem margar þjóðir byggðu.

7Allt gerir hann af trúfesti og réttlæti og öll fyrirmæli hans eru áreiðanleg og góð,

8gefin í kærleika og af réttvísi – þau munu standa að eilífu.

9Hann hefur frelsað þjóð sína og gert við hana eilífan sáttmála. Heilagt og óttalegt er nafn Drottins.

10Hvernig öðlast menn visku? Með því fyrst að óttast og heiðra Guð og síðan með því að halda lög hans. Lofað sé nafn hans að eilífu.

heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

WEBREATH · 11:11

«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25

Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.

WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath