Kristni
til baka

Sálmarnir 110

1Guð sagði við minn Drottin – við Krist: „Þú skalt ráða og ríkja mér við hlið. Ég mun sigra óvini þína og láta þá þjóna þér.“

2Guð hefur reist þér hásæti í Jerúsalem og þaðan muntu drottna yfir óvinum þínum.

3Þegar konungsvald þitt verður lýðum ljóst, mun þjóð þín flýta sér á þinn fund og æskufólk þitt íklæðast helgum skrúða. Eins og döggin er ný á hverjum morgni, eins mun styrkur minn endurnýjast dag eftir dag.

4Guð hefur unnið mér eið – og hann iðrast þess ekki – að þú ert prestur að eilífu að hætti Melkísedeks.

5Guð er þér til hægri handar til að vernda þig. Þegar reiðidómur hans verður birtur mun hann fella marga konunga til jarðar.

6Hann mun refsa þjóðunum, lík þeirra munu liggja út um allt. Hann mun mölva höfuð þeirra.

7Á leiðinni drekkur hann úr lindinni við veginn og ber höfuðið hátt.

heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

WEBREATH · 11:11

«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25

Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.

WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath