Kristni
til baka

Sálmarnir 108

1Ó, Guð, nú vil ég lofa þig! Ég vil syngja og fagna frammi fyrir þér.

3Vaknaðu, harpa og gígja! Við viljum bjóða morgunroðann velkominn með söng!

4Ég vil lofa þig um víða veröld, Drottinn, vegsama þig hjá hverri þjóð.

5Því að miskunn þín nær til skýjanna og trúfesti þín er ómælanleg!

6Láttu tign þína og mátt birtast og dýrð þína breiðast yfir jörðina.

7Hlustaðu á ákall vina þinna og bjargaðu þeim með krafti þínum, já, bænheyrðu þá.

8Fögnum og gleðjumst því að við höfum fengið loforð frá Guði! Hann hefur lofað að gefa okkur Síkemland og Súkkótdal.

9„Ég á Gíleað, ég á Manasse og Efraím er hjálmurinn á höfði mínu. Júda er veldissproti minn

10en Móab og Edóm fyrirlít ég og yfir Filisteu æpi ég siguróp.“

11Hver nema Guð getur veitt mér styrk til að sigrast á víggirtum borgum? Hver nema hann getur opnað mér leið inn í Edóm?

12Drottinn, hefur þú útskúfað okkur? Hefur þú gert her okkar óvígan?

13Ó, veittu okkur lið gegn óvinum okkar, því að mannahjálp er gagnslaus.

14Með hjálp Guðs munum við vinna hetjudáð og hann mun gjörsigra óvini okkar.

heimild: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

WEBREATH · 11:11

«He himself gives everyone life and breath and everything else» — Acts 17:25

Breath is one for all: everyone lives by it, whoever they are and whatever they believe. Every day at 11:11 local time people stop for sixty seconds, breathe, and thank GOD for the breath — each in their own words, each within themselves. In that minute we are One Breath.

WEBREATH — the Minute at 11:11, your own local time — we are One Breath